Hinn 18 ára gamli Norðmaður Espen Smeplass tók óvenjulegt en ansi flott vítakast fyrir Herkules gegn Nærbø í norsku B-deildinni í handbolta á dögunum. Hann gerði sér lítið fyrir og skaut um leið og hann fór í heljarstökk aftur á bak.
Þetta ótrúlega víti má sjá í myndbandinu hér að neðan.