Ólafur fór fyrir meistaraliðinu

Ólafur Andrés Guðmundsson.
Ólafur Andrés Guðmundsson. Ljósmynd/Kristianstad

Ólafur Andrés Guðmundsson fór fyrir sænska meistaraliðinu Kristianstad þegar liðið lagði Lugi að velli í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld, 33:19.

Ólafur skoraði 7 mörk í leiknum, Gunnar Steinn Jónsson skoraði 2 og Arnar Freyr Arnarsson 1. Þetta var 50. sigur Kristianstad í röð á heimavelli í deildinni. Kristianstad er efst í deildinni en liðið hefur unnið alla fimm leiki sína.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert