Naumt tap fyrir Slóvenum í fyrsta leik

Dagur Gautason.
Dagur Gautason. Ljósmynd/HSÍ

Íslenska U17 ára landslið karla í handknattleik mátti þola 27:26 tap fyrir Slóveníu í fyrsta leik sínum á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar sem fram fer í Győr í Ungverjalandi. Dagur Gautason, leikmaður KA, var markahæstur í íslenska liðinu með 11 mörk. 

Staðan í hálfleik var 11:11 í jöfnum og spennandi leik. Selfyssingurinn Haukur Þrastarson skoraði sex mörk og var næstmarkahæstur. Íslenska liðið leikur gegn Frökkum á morgun. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert