Guðjón og Alexander í vænlegri stöðu

Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 2 mörk fyrir Rhein-Neckar Löwen í …
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 2 mörk fyrir Rhein-Neckar Löwen í dag. Ljósmynd/Robert Spasovski

Rhein-Neckar Löwen fór með sigur af hólmi, 23:21, gegn Flensburg þegar liðin mættust i uppgjöri efstu liðanna í þýsku 1. deildinni í handbolta karla í dag.

Rhein-Neckar Löwen hefur þriggja stiga forskot á Flensburg á toppi deildarinnar eftir þennan sigur, en þrjár umferðir eru eftir af deildinni. 

Leikurinn fór fram í Flensburg. Alexander Petersson skoraði fimm mörk fyrir Rhein-Neckar Löwen í leiknum og Guðjón Valur Sigurðsson bætti tveimur mörkum við fyrir liðið. 

Löwen á eftir heimaleik við Kiel, útileik við Wetzlar og heimaleik við Melsungen. Fái liðið fjögur stig verður það meistari, sama hvað Flensburg gerir í sínum leikjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert