Sigurður Þorvaldsson, leikmaður Snæfells, er líklega nefbrotinn samkvæmt frétt á netmiðlinum Karfan.is.
Sigurður fékk högg á nefið í framlengingu í leiknum á móti KFÍ á sunnudaginn og eru líkur taldar á því að nefið sé brotið en ekki hafði fengist úr því skorið í gær.
Sigurður kom inn í lið Snæfells á miðju tímabili í vetur eftir tveggja og hálfs árs hlé og hefur sótt mjög í sig veðrið að undanförnu. Hann hefur tvívegis verið stigahæsti leikmaður liðsins í síðustu leikjum og fór á kostum á Ísafirði og skoraði 34 stig.