Ólafía og Guðrún úr leik

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er úr leik eftir tvo hringi.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er úr leik eftir tvo hringi. Ljósmynd/seth@golf.is

Atvinnukylfingarnir Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Guðrún Brá Björgvinsdóttir eru úr leik eftir tvo hringi á Tipsport Czech Ladies Open. Mótið er hluti af Evrópumótaröðinni í golfi.

Ólafía lék á 71 höggi í dag, einu höggi undir pari, en það dugði ekki til því hún lék fyrsta hringinn í gær á 75 höggum. Hún lýkur leik á tveimur höggum undir pari og í 74. sæti.

Guðrún Brá lék hringina tvo á 74 höggum hvorn og lýkur leik á fjórum höggum yfir pari og í 90. sæti.

Daninn Nicole Estrup og hin austurríska Emma Spitz eru efstar á tólf höggum undir pari.

Guðrún Brá Björgvinsdóttir náði sér ekki almennilega á strik.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir náði sér ekki almennilega á strik. Ljósmynd/Tristan Jones/LET
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert