Tveir atvinnukylfingar í golfi hafa verið greindir með kórónuveiruna og hafa nú komið upp þrjú smit á PGA-mótaröðinni á rúmri viku. Kylfingarnir þurfa því að draga sig úr keppni í bili en Travelers Championship mótið í Connecticut í Bandaríkjunum hefst á morgun.
Kylfingurinn Cameron Champ greindist með smit í gærkvöldi og hefur dregið sig úr keppni en Graeme McDowell hefur einnig þurft að draga sig í hlé eftir að kylfuberi hans, Ken Comboy, greindist með veiruna.
Í síðustu viku varð Nick Watney fyrstu kylfinga á mótaröðinni til að smitast. Í frétt Guardian segir að búast megi við því að PGA herði reglur og fjölgi veiruprófunum í kjölfar þessara tíðinda.