Keppnin um Ryder-bikarinn mun ekki fara fram í september á Whistling Straits-vellinum í Bandaríkjunum í september eins og upprunalega stóð til heldur verður henni frestað til næsta árs samkvæmt frétt The Guardian.
Búist er við því að frestunin verði staðfest í næstu viku en fjölmargir kylfingar hafa lagst gegn því að keppnin fari fram án áhorfenda. Mikil stemning myndast í keppninni um Ryder-bikarinn og áhorfendur leyfa sér að vera háværari og fyrirferðarmeiri en á hefðbundnum golfmótum og hefur langflestum keppendunum líkað það vel. Í bikarnum mætast úrvalslið Bandaríkjanna og Evrópu.
Fyrsta risamót ársins, PGA-meistaramótið, mun fara fram án áhorfenda í ágúst eins og mbl.is greindi frá í morgun en mótshaldarar vilja ekki spila Ryder-bikarinn með sama sniði. Norðurírski kylfingurinn Rory McIlroy, einn sá besti í heimi, er meðal þeirra sem vill frekar fresta bikarnum heldur en að spila hann án áhorfenda.
„Án áhorfenda yrði þetta ekki mikill viðburður enda myndi vanta andrúmsloftið sem vanalega ríkir. Ég myndi frekar vilja fresta keppninni til 2021 en að spila án áhorfenda. Og ég segi þetta sem Evrópubúi sem mun fá fyrir ferðina hjá áhorfendum í Bandaríkjunum,“ sagði McIlroy í apríl.