Atvinnukylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir lék í dag sinn besta hring á þriðja hring á 2. stigi úrtökumóts fyrir LPGA-mótaröðina í golfi í Flórída.
Valdís Þóra lék hringinn á 73 höggum eða einu höggi yfir pari en fyrsta hringinn lék hún á 76 höggum og annan á 78. Hún hefur því leikið hringina þrjá á 227 höggum eða 11 höggum yfir pari.
Valdís fékk fjóra fugla, þrjá skolla og einn skramba og möguleikar hennar á að komast á 3. stig úrtökumótsins verða að teljast ansi litlir.