Tiger Woods upp um 630 sæti

Tiger Woods
Tiger Woods AFP

Tiger Woods er nú kominn í 26. sæti heimslistans í golfi eftir góða frammistöðu í tveimur síðustu risamótum, The Open og PGA-meistaramótinu.

Woods hefur klifrað upp listann á árinu en hann var ansi neðarlega í fyrra eftir að meiðsli héldu honum frá keppni. Woods var í upphafi árs í 656. sæti heimslistans og á átta mánuðum er stökkið því gríðarlegt.

Brooks Koepka, sigurvegari á PGA-meistaramótinu, fer upp í annað sætið en Dustin Johnson heldur því efsta.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert