Par var ekki nóg fyrir Ólafíu

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. AFP

Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er úr leik á Walmart-mótinu í Arkansas eftir að hún lék annan hringinn á 73 höggum í gærkvöld, tveimur yfir pari vallarins.

Ólafía, sem lék fyrsta hringinn á 69 höggum á föstudaginn var þar með á pari samtals, og það var ekki nóg því leika þurfti á tveimur höggum undir pari til að komast áfram.

Hún endaði í 96.-111. sæti en fyrstu 79 keppendurnir leika þriðja og síðasta hringinn í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert