Valdís í 33. sæti fyrir síðasta hringinn

Valdís Þóra Jónsdóttir.
Valdís Þóra Jónsdóttir.

Valdís Þóra Jónsdóttir er í 33. sæti eftir þrjá hringi á Ladies European Tailand Championship-mótinu á Evrópumótaröðinni í golfi. 

Valdís lék fyrstu tvo hringina á 71 höggi eða einu höggi undir pari og fór í gegnum niðurskurðinn. Hún lék hins vegar á 74 höggum í dag, eða tveimur höggum yfir pari og féll niður um nokkur sæti fyrir vikið. 

Heimakonan Kanyalak Preedasuttijit er í forystu á 12 höggum undir pari fyrir lokahringinn sem verður leikinn á morgun. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert