Haukur næsti forseti Evrópska golfsambandsins

Haukur Örn Birgisson.
Haukur Örn Birgisson. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Haukur Örn Birgisson, forseti Golfsambands Íslands, var um helgina kjörinn næsti forseti Evrópska golfsambandsins, EGA, á aðalfundi samtakanna sem fram fór í Lausanne í Sviss. Hann mun taka við embættinu árið 2019.

„Fyrirkomulagið hjá EGA er þannig að forsetinn er kosinn með tveggja ára fyrirvara þannig að nú mun ég gegna embætti „verðandi forseta“ eða „president-elect“ næstu tvö árin. Svo tek ég við forsetaembættinu árið 2019 og gegni því til ársins 2021,“ sagði Haukur við Vísi.

Haukur sat í mótanefnd EGA árin 2010-2014 og hefur setið í framkvæmdastjórn sambandsins frá 2015, en þangað var hann kjörinn fyrstur Íslendinga.

„Þetta fyrirkomulag gefur mér kost á að kynnast betur störfum forseta sambandsins áður en ég tek sjálfur við embættinu eftir tvö ár. Þetta er vissulega mikill heiður fyrir mig en ekki síður viðurkenning fyrir íslenskt golf og velgengni þess síðastliðin 15 ár. Það er margt spennandi að gerast í evrópsku golfi og ég efast ekki um að þessi aðkoma mín að EGA muni gefa okkur hér á landi enn meiri byr í seglin,“ sagði Haukur.

EGA var stofnað árið 1937 og 48 golfþjóðir Evrópu eru innan sambandsins. Það sér meðal annars um framkvæmd Evrópumóta og annarra alþjóðlegra keppna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert