Valdís Þóra Jónsdóttir, kylfingur úr Leyni, er á meðal fyrstu keppenda að ljúka leik á þriðja hring Estrella Damm Mediterranean-mótsins sem er hluti af Evrópumótaröðinni og fer fram í Sitges á Spáni.
Valdís lék hringinn í dag á tveimur höggum yfir pari vallarins eða 73 höggum og er samtals á pari eftir þrjá hringi. Hún fékk fimm skolla í dag og þrjá fugla, meðal annars á síðustu holunni, en fyrir hringinn í dag var hún samtals á tveimur höggum undir pari.
Valdís kom í hús í 38.-46. sæti, en staða hennar fyrir lokahringinn á morgun ræðst þó ekki endanlega fyrr en allir kylfingar eru komnir í hús.