Júlían og Sóley taka þátt á heimsleikunum

Júlían J. K. Jóhannsson og Sóley Margrét Jónsdóttir munu bæði …
Júlían J. K. Jóhannsson og Sóley Margrét Jónsdóttir munu bæði taka þátt á heimsleikunum í næsta mánuði. mbl.is/Kristinn Magnússon

Júlían J. K. Jóhannsson og Sóley Margét Jónsdóttir hafa öðlast keppnisrétt á heimsleikunum í kraftlyftingum sem fara fram í Birmingham í Alabama-fylki í Bandaríkjunum í næsta mánuði.

Júlían og Sóley leggja nú lokahönd á undirbúning sinn, sem hefur staðið lengi yfir, fyrir leikana.

Bæði keppa þau þann 11. júlí næstkomandi á heimsleikunum e. (The World Games) í Birmingham.

„Þessi viðburður er sá stærsti í kraftlyftingum, haldinn á fjögurra ára fresti og eingöngu þau allra bestu í heiminum fá tækifærið. Þetta er stór alþjóðlegur viðburður sem mikið er lagt í,“ sagði meðal annars í tilkynningu frá Kraftlyftingasambandi Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert