Boyko Borisov, forsætisráðherra Búlgaríu, krefst þess að forseti knattspyrnusambands landsins segi af sér eftir að tvívegis þurfti að stöðva leik Búlgaríu og Englands í undankeppni EM í gærkvöldi vegna rasisma búlgarskra stuðningsmanna.
„Ég legg hart að Borislav Mihaylov [forseta knattspyrnusambands Búlgaríu] að segja af sér á stundinni!“ skrifaði Borisov á Facebook. Hann bætti því við að það væri ómögulegt að tengja Búlgaríu við rasisma og útlendingahatur.
England vann leikinn 6:0 á Levski-vellinum í Sofiu. Forsætisráðherrann sagðist fordæma hegðun áhorfenda og fullyrti að Evrópusambandslandið Búlgaría væri eitt af víðsýnustu löndum í heimi.
Forsætisráðherrann bætti því við að ríkisstjórnin myndi slíta öll tengsl við búlgarska knattspyrnusambandið, þar á meðal fjárhagslegan stuðning, þar til Borislav Mihaylov segir af sér.