Ný stytta af sænska knatspyrnumanninum Zlatan Ibrahimovic var vígð í heimaborg hans Malmö í síðustu viku og voru þúsundir aðdáenda, og Zlatan sjálfur, mættir til að berja hana augun.
Á stalli styttunnar er yfirferð yfir afrek Svíans sjálfumglaða. Ekki vildi þó betur til en svo að fjölmargar stafsetningarvillur eru á plattanum. Þannig stendur á plattanum Gup í stað orðsins Cup, og Hampions League í stað Champions League. Flestar villurnar minna á hefðbundnar innsláttarvillur, en einhver kynni að spyrja sig hvernig í ósköpunum þær rata á platta þar sem óratíma tekur að höggva hvern staf.
„Ég veit ekki hvernig stendur á þessu, en þetta er frekar fyndið,“ segir Peter Linde, myndhöggvarinn sem skóp styuttuna, í samtali við sænska ríkisútvarpið og bætir við að villurnar verði leiðréttar svo fljótt sem auðið er.