KA getur orðið meistari í kvöld

Leikmenn HK stilla sér upp í vörnina í þriðja leik …
Leikmenn HK stilla sér upp í vörnina í þriðja leik liðanna á dögunum. Ljósmynd/Þórir

HK og KA mætast í fjórða sinn í úrslitarimmunni um Íslandsmeistaratitil kvenna í blaki í Fagralundi í Kópavogi í kvöld. 

KA er 2:1 yfir í rimmunni en HK minnkaði muninn í síðasta leik liðanna á Akureyri á sunnudag. 

KA og HK eru einnig í hörðum slag í karlaflokki og mætast í oddaleik næstkomandi þriðjudag eftir að KA vann 3:2-sigur er liðin mættust í Fagralundi í gærkvöldi. 

Leikurinn í kvöld hefst klukkan 19:30. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert