Viggó skoraði tíu gegn toppliðinu

Viggó Kristjánsson átti stórleik þrátt fyrir tap.
Viggó Kristjánsson átti stórleik þrátt fyrir tap. Ljósmynd/Handball-westwien.at

Íslendingaliðið West Wien mátti þola 25:29-tap á móti toppliði Krems í efstu deild Austurríkis í handbolta í kvöld. 

Þrátt fyrir tapið átti Viggó Kristjánsson stórleik fyrir West Wien og skoraði tíu mörk. Guðmundur Hólmar Helgason skoraði þrjú og Ólafur Bjarki Ragnarsson gerði eitt mark. 

West Wien er í fjórða sæti austurrísku deildarinnar með 12 stig en Krems í toppsætinu með 20 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert