Sturla féll úr leik í fyrri ferðinni

Sturla Snær Snorrason er úr leik.
Sturla Snær Snorrason er úr leik. AFP

Sturla Snær Snorrason er úr leik í svigi á HM í alpagreinum þar sem honum mistókst að komast í seinni ferðina í lokakeppninni í svigi í dag. Sturla féll úr leik eftir nokkur hlið í fyrri ferðinni. 

Sturla hafnaði í tólfta sæti í undankeppninni og var með fimmta besta tímann í seinni ferðinni. Úrslitin í dag eru því vonbrigði eftir ágætt mót. 

Íslenski hópurinn á HM hefur lokið keppni í ár, en í dag er síðasti keppnisdagur mótsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert