Einn sá besti lætur gott heita

Petter Northug.
Petter Northug. AFP

Fremur óvænt tíðindi berast frá Noregi þess efnis að skíðagöngumaðurinn og Íslandsvinurinn Petter Northug hafi ákveðið að hætta keppni aðeins 32 ára gamall. 

Northug hefur um árabil verið í fremstu röð í heiminum og er tvöfaldur ólympíumeistari og þrettánfaldur heimsmeistari. Auk þess státar hann af átján sigrum á heimsbikarmótum. 

Northug kom til Íslands í fyrra og keppti í Fossavatnsgöngunni á Ísafirði fyrir um einu og hálfu ári síðan. 

Petter Northug
Petter Northug AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert