Hörkuskemmtileg sveitakeppni um helgina

Sigursveit JR. Aftari röð frá vinstri: Hermann Unnarsson (-73), Logi …
Sigursveit JR. Aftari röð frá vinstri: Hermann Unnarsson (-73), Logi Haraldsson (-81), Þormóður Jónsson (+90 kg,) Árni Lund (-90 kg). Fremri röð frá vinstri: Oddur Kjartansson (-73kg) og Janusz Komendera (-66 kg). Ljósmynd/Aðsend

Sveitakeppni karla í júdó fór fram í gær og var hún haldin í Skelli hjá júdódeild Ármanns. Það voru óvenjufáar sveitir mættar til leiks að þessu sinni en keppnin var engu að síður ákaflega skemmtileg eins og jafnan er í sveitakeppni. Það var að lokum sveit Júdófélags Reykjavíkur sem stóð uppi sem sigurvegari.

Fullt var af flottum viðureignum og köstum og má nefna sópið hans Breka Bernharðssonar gegn Birgi Arngrímssyni í -81 kg flokknum, kastið hans Dofra Bragasonar gegn Hauki Ólafssyni í -66 kg flokknum og kastið hans Loga Haraldssonar í -81 kg flokknum JR gegn KA.

Ekki var gólfglíman síðri og mátti sjá frábæra vinnslu þar eins og hjá Agli Blöndal gegn Adam Þórarinssyni í -90 kg flokknum og Hermanni Unnarssyni gegn gegn Arnari Björnssyni í -73 kg flokknum.

Sú viðureign sem var þó kannski hvað mest spennandi var milli þeirra Egils Blöndal frá Selfossi og hins unga og efnilega Árna Lund í JR. Þeir kepptu í -90 kg þyngdarflokki og varði sú viðureign allan glímutímann og var gríðarlega spennandi. Hún fór svo að lokum að Egill, sem er Íslandsmeistari bæði í -90 kg og opnum flokki 2017 og einn okkar sterkasti júdómaður í dag, sigraði Árna á wazaari eftir hörkuviðureign.

Leikar fóru þó þannig þegar upp var staðið að sveit JR sigraði og er Íslandsmeistari 2017, í öðru sæti varð sveit Selfoss og í því þriðja sveit KA.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert