Jón Þór í 8. sæti á EM

Jón Þór Sigurðsson.
Jón Þór Sigurðsson. Ljósmynd/JAK

Jón Þór Sigurðsson hafnaði í 8. sæti í 50 metra liggjandi riffli á Evrópumeistaramótinu í Bakú í Aserbaídsjan.

Jón Þór komst í úrslit á stórmóti í fyrsta skipti á ferlinum en náði ekki að velgja keppinautum sínum frekar undir uggum. Þess má geta að keppendur voru 68 talsins í þessari grein.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert