Arnar og Arndís Íslandsmeistarar

Arndís Ýr Hafþórsdóttir og Arnar Pétursson.
Arndís Ýr Hafþórsdóttir og Arnar Pétursson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Arnar Pétursson, ÍR, og Arndís Ýr Hafþórsdóttir, Fjölni, eru Íslandsmeistarar í 10 km hlaupi en þau komu fyrst í mark í Stjörnuhlaupinu sem fram fór síðastliðinn laugardag.

Arnar vann í karlaflokki á tímanum 32:30 mínútur. Í öðru sæti var Þórólfur Ingi Þórsson ÍR á tímanum 33:36 mínútum sem jafnframt er nýtt Íslandsmet í flokki 41-44 ára karla. Fyrra metið var 33:40 mínútur og var það í eigu Sigurðar P. Sigmundssonar. Í þriðja sæti var Birkir Einar Gunnlaugsson á tímanum 36:43 mínútum.

Tími Arndísar í kvennaflokki var 37:45 mínútur. Í öðru sæti var Elín Edda Sigurðardóttir ÍR á tímanum 38:13 mínútum sem jafnframt er bæting hjá henni. Í þriðja sæti var Fríða Rún Þórðardóttir ÍR á tímanum 40:43 mínútum.

Í 5 km hlaupi var Ingvar Hjartarson Fjölni hlutskarpastur í karlaflokki á tímanum 16:53 mínútum og í kvennaflokki vann Hulda Guðný Kjartansdóttir úr Hlaupahópi Stjörnunnar á tímanum 20:01 mínútum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert