Andlát: Ríkharður Jónsson

Ríkharður Jónsson fremstur á myndinni.
Ríkharður Jónsson fremstur á myndinni. Ljósmynd/mbl.is

Ríkharður Jónsson málarameistari, knattspyrnukappi og fyrrum formaður Íþróttabandalags Akraness lést 14. febrúar sl. á Dvalarheimilinu Höfða 87 ára að aldri. Þetta kemur fram á heimasíðu ÍA.

Á heimasíðu ÍA kemur eftirfarandi fram:

Með Ríkharði er genginn mikill sómamaður og einn besti knattspyrnumaður Íslands fyrr og síðar. Ríkharður hóf að iðka knattspyrnu á unga aldri og þótti strax hafa mikla hæfileika. Hann hóf að leika með meistaraflokki ÍA 1946 þá aðeins 16 ára gamall og sama ár var hann valinn í landsliðhóp Íslands fyrir fyrsta landsleik Íslands.

Ríkharður fluttist til Reykjavíkur 1947 og nam þar málaraiðn og lék jafnfram með Fram næstu fjögur árin og varð Íslandsmeistari 1947 með liðinu. Að loknu námi þar fluttist hann að nýju til Akranes og tók þá við þjálfun Akranesliðsins jafnframt því að leika með því. Þá var hann rösklega 20 ára gamall. Hann byggði upp hið frábæra og goðsagnakennda gullaldarlið Skagamanna og á árunum 1951-1960 vann liðið sex meistaratitla. Það er athyglisvert þegar litið er til baka að Ríkharður hafi á þessum tíma verið þjálfari og lykilleikmaður liðsins og jafnfram landsliðsmaður og stundum líka landsliðsþjálfari. Jafnframt öllu þessu stundaði hann sitt ævistarf sem málarameistari, rak fyrirtæki sitt, hafði marga í vinnu og sló hvergi af sjálfur. 

Ferill hans sem leikmanns var frábær. Hann lék með Akranesliðinu fyrst 1946 og síðan 1951-1966 og var jafnframt þjálfari þess 1951-1963 og síðan 1966. Alls lék hann 184 leiki og skoraði í þeim 136 mörk. Til marks um frábært markaskor hans má nefna að í lok ársins 1959 hafði hann leikið 50 deildarleiki fyrir ÍA og skorað í þeim 52 mörk. Eftir að leikmannsferli hans lauk hélt hann áfram að þjálfa Akranesliðið og það gerði hann flest árin til 1973 þegar hann lét staðar numið. Hann vann meistaratitilinn sem þjálfari Akranesliðsins 1970 og sama ár stýrði hann liðinu í fyrstu leikjum þess í Evrópukeppi. Ríkharður var fastagestur á leikjum ÍA og landsliðsins fram á síðustu ár og mikill áhugamaður um framgang knattspyrnunnar. 

Ríkharður var mikill félagsmálamaður og kom víða við í þeim efnum. Hann var m.a. formaður ÍA um árabil og sat í bæjarstjórn Akranes um skeið. Ríkharður var margvíslegur sómi sýndur um æfinga. Hann var sæmdur heiðurskross KSÍ, meðlimur í heiðurshöll ÍSÍ, heiðursfélagi bæði ÍA og KFÍA og hann var gerður að heiðursborgara á Akranesi 2008. 

Ríkharður var mikill fjölskyldumaður. Eiginkona hans var Hallbera Leósdóttir sem lést 9 janúar sl. Börn þeirra eru fimm og í aldursröð Ragnheiður, Hrönn, Ingunn, Sigrún og Jón Leó.
Knattspyrnufélag ÍA þakkar Ríkharði af heilum hug hans störf fyrir knattspyrnuna á Akranesi og allan þann stuðning sem hann veitti á löngum tíma. Börnum þeirra og öðrum aðstandendum eru sendar hugheildar samúðarkveðjur. 

Blessuð sé minning Ríkharðs Jónssonar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert