Óvænt úrslit urðu í fyrsta leik þegar 1. deild spænsku knattspyrnunnar, La Liga, fór af stað í kvöld. Meistararnir í Barcelona máttu sætta sig við tap.
Athletic Bilbao fékk Barca í heimsókn og hafði betur 1:0. Meistararnir lentu reyndar ekki undir fyrr en á 89. mínútu leiksins Aritz Aduriz skoraði og gladdi tæplega 50 þúsund áhorfendur.
Lionel Messi var ekki í leikmannahópi Barca í kvöld og Luis Suárez fór af velli eftir 37 mínútna leik.