Anna lagði upp í fyrsta leik

Anna Rakel Pétursdóttir fer vel af stað með sínu nýja …
Anna Rakel Pétursdóttir fer vel af stað með sínu nýja liði Linköping í Svíþjóð. mbl.is/Árni Sæberg

Anna Rakel Pétursdóttir var í byrjunarliði Linköping sem mætti Växjö í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær. Anna gerði sér lítið fyrir og lagði upp annað mark Linköping í leiknum á 39. mínútu en leiknum lauk með öruggum sigri Linköping, 5:0.

Anna Rakel lék allan leikinn fyrir Linköping sem tyllir sér á toppinn í sænsku deildinni eftir sigur gærdagsins en fyrsta umferð tímabilsins kláraðist með leik Linköping og Växjö í gær. Anna gekk til liðs við Linköping í desember á síðasta ári frá Þór/KA þar sem hún er uppalin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert