Jón Dagur sá rautt í fyrri hálfleik

Jón Dagur Þorsteinsson sá tvö gul og þar með rautt.
Jón Dagur Þorsteinsson sá tvö gul og þar með rautt. mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari

Jón Dagur Þorsteinsson var í byrjunarliði Vendsyssel sem mætti Horsens í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Jón Dagur spilaði hins vegar aðeins 34 mínútur þar sem hann fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt á 34. mínútu. Var þetta í fyrsta skipti sem Jóni Degi er vikið af velli með rautt spjald í 75 leikjum á ferlinum. 

Liðsfélagar Jóns héldu hreinu út hálfleikinn en fengu svo skell í síðari hálfleik og lauk leiknum með 3:0-sigri Horsens. Vendsyssel er í næstneðsta sæti deildarinnar með 19 stig eftir 22 leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert