Denis Tsjerishev til Valencia

Denis Cheryshev hefur skrifað undir lánssamning við Valencia.
Denis Cheryshev hefur skrifað undir lánssamning við Valencia. AFP

Rússneski knattspyrnumaðurinn Denis Tsjerishev er genginn til liðs við Valencia en hann kemur til félagsins frá Villarreal. Tsjerishev skrifaði undir eins árs lánssamning við Valencia sem gildir út leiktíðina en hann hefur verið í herbúðum Villarreal frá árinu 2016.

Þessi 27 ára gamli leikmaður var samningsbundinn Real Madrid á Spáni á árunum 2012 til ársins 2016 en hann spilaði aðeins tvo aðalliðsleiki fyrir félagið. Tsjerishev var í stóru hlutverki hjá Rússum á HM í Rússlandi í sumar en liðið fór alla leið í átta liða úrslit mótsins þar sem Rússar töpuðu fyrir Króötum í vítaspyrnukeppni í Sotsjí.

Tsjerishev kom við sögu í fimm leikjum með Rússum á mótinu, þar af byrjaði hann þrjá, og í þessum fimm leikjum skoraði hann fjögur mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert