Zlatan Ibrahimovic: „Ég fer á HM“

Zlatan Ibrahimovic fagnar ásamt samherja sínum Sebastian Lletget hjá Los …
Zlatan Ibrahimovic fagnar ásamt samherja sínum Sebastian Lletget hjá Los Angeles Galaxy. AFP

Zlatan Ibrahimovic skellti sér í viðtal í spjallþætti Jimmy Kimmel, ef til vill til að kynna sig betur í Bandaríkjunum og LA, en niðurstaðan varð nokkuð skrautleg. Kappinn átti nokkur ótrúleg ummæli í þættinum og sagðist til dæmis hafa komið Svíum á kortið í knattspyrnunni. 

Slík ummæli eru sérkennileg fyrir margra hluta sakir enda hafði sænska landsliðið náð lengra löngu áður en Ibrahimovic fæddist en þegar hann spilaði með því. Ibrahimovic sagðist fara á HM og glotti en hann fór ekki nánar út í það hvort það yrði til að spila eða horfa á. 

Í meðfylgjandi myndskeiði má hlýða á viðtalið en hógværð er ekki eitt af því sem kemur upp í hugann þegar hlýtt er á málflutning Svíans sem splæsti í heilsíðu í blaðinu LA Times til að kynna sig fyrir borgarbúum við komuna til Kaliforníu. Reyndar er rétt að geta þess að Svíinn skellti iðulega upp úr þegar hann hafði svarað og gæti það þýtt að ekki eigi að taka svörin of hátíðlega. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert