Tveir sigrar hjá Sigurði Ragnari

Sigurður Ragnar Eyjólfsson.
Sigurður Ragnar Eyjólfsson. mbl.is/Styrmir Kári

Kínverska kvennalandsliðið í knattspyrnu, undir stjórn Sigurðar Ragnars Eyjólfssonar, hefur unnið báða leiki sína til þessa á fjögurra þjóða alþjóðlegu móti í Foshan í Kína.

Kína vann Taíland í dag, 2:1, þrátt fyrir að hafa lent undir á 21. mínútu. Wang Shanshan jafnaði metin á 30. mínútu og Ren Guixin skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu snemma í seinni hálfleik. Kína er í 14. sæti á heimslista FIFA og Taíland í 29. sæti.

Áður hafði Kína unnið 4:0-sigur á Víetnam á föstudaginn. Síðasti leikur liðsins á mótinu er gegn Kólumbíu á þriðjudaginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert