Ronaldo og félagar skoruðu sjö

Cristiano Ronaldo skoraði tvö í dag.
Cristiano Ronaldo skoraði tvö í dag. AFP

Real Madrid valtaði yfir Deportivo La Coruña, 7:1, er liðin mættust í spænsku A-deildinni í fótbolta í dag. Adrián López kom Deportivo yfir snemma leiks en Real komst í 2:1 fyrir hálfleik og bauð upp á sýningu í síðari hálfleiknum.

Nacho, Cristiano Ronaldo og Gareth Bale skoruðu allir tvö mörk fyrir Real og Luka Modric gerði eitt mark. Þrátt fyrir sigurinn er Real enn í fjórða sæti, fimm stigum á eftir Valencia sem er í sætinu fyrir ofan og 16 stigum á eftir toppliði Barcelona. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert