Hólmar og félagar í undanúrslit

Hólmar Örn Eyjólfsson í leik með Levski Sofía.
Hólmar Örn Eyjólfsson í leik með Levski Sofía. Ljósmynd/Levski Sofía

Hólmar Örn Eyjólfsson og liðsfélagar hans í Levski Sofia eru komnir í undanúrslit í búlgarska bikarnum í fótbolta eftir 2:0-útisigur á Dunav Rousse í dag.

Hólmar var að venju í byrjunarliði Levski og lék allan leikinn. Hólmar og félagar hafa spilað  mjög vel að undanförnu og ekki tapað í síðustu átta leikjum sínum. 

Búlgarska deildin er hins vegar komin í jólafrí og hefst á nýjan leik um miðjan febrúar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert