Griezmann má yfirgefa Atletico

Antoine Griezmann
Antoine Griezmann AFP

Diego Simeone, knattspyrnustjóri spænska liðsins Atletico Madrid segir að Antoine Griezmann, besti leikmaður liðsins megi yfirgefa félagið. Griezmann hefur verið orðaður við Manchester United að undanförnu. 

Griezmann verður væntanlega með Atletico út leiktíðina, en hann gæti leitað annað næsta sumar. „Auðvitað má Griezmann fara á einhverjum tímapunkti, alveg eins og Diego Costa og Arda Turan. Ég elska leikmennina mína og ég vil sjá þá vaxa," sagði Simeone samtali við l'Equipe. 

„Ef leikmaður segir við mig að hann sé með tilboð frá spennandi félagi, mun það ekki vera vandamál," bætti hann við. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert