Ramos nefbrotnaði um helgina

Sergio Ramos í baráttu gegn Atlético áður en hann nefbrotnaði.
Sergio Ramos í baráttu gegn Atlético áður en hann nefbrotnaði. AFP

Sergio Ramos, fyrirliði Evrópumeistara Real Madrid í knattspyrnu, nefbrotnaði um helgina þegar Real gerði markalaust jafntefli við granna sína í Atlético Madrid.

Hinn 31 árs gamli Ramos fékk spark í andlitið frá Lucas Hernandez í fyrri hálfleik og fékk aðhlynningu en fór að lokum af velli í hálfleik. Ekki er ljóst hvað hann verður lengi frá.

„Ég myndi blæða þúsund sinnum fyrir þetta merki og þessa treyju. Takk fyrir stuðninginn, ég sný aftur eins fljótt og ég get,“ skrifaði Ramos á Twitter-síðu sína eftir leikinn.

Real á titil að verja í spænsku 1. deildinni en er nú þegar tíu stigum á eftir toppliði Barcelona.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert