Höskuldur Gunnlaugsson lagði upp eina mark Halmstad í gær þegar liðið gerði 1:1-jafntefli við Kalmar á heimavelli. Skagamaðurinn Tryggvi Hrafn Haraldsson var í fyrsta sinn í byrjunarliði Halmstad og lék rúmar 80 mínútur.
Jafnteflið dugar Halmstad skammt en liðið er í fallsæti með 14 stig og nú níu stigum á eftir næsta liði, Jönköping Södra, sem vann góðan 3:1-sigur á Sirius. Sex umferðir eru eftir af deildinni.
Árni Vilhjálmsson kom inn á sem varamaður hjá Jönköping sem situr nú í sérstöku umspilssæti um að forðast fall.