Höskuldur lagði upp mark

Höskuldur Gunnlaugsson.
Höskuldur Gunnlaugsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Höskuldur Gunnlaugsson lagði upp mark Halmstad þegar liðið gerði 1:1 jafntefli við Kalmar í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

Höskuldur lék allan tímann en Tryggvi Haraldsson, sem var í byrjunarliðinu í fyrsta sinn, fór af velli á 85. mínútu. Halmstad er í næstneðsta sæti deildarinnar með 14 stig.

Birkir Már Sævarsson og Arnór Smárason léku báðir allan tímann fyrir Hammarby í 2:1 sigri gegn Gautaborg. Elías Már Ómarsson lék síðustu 12 mínúturnar fyrir Gautaborgarliðið. Hammarby er í 7. sæti deildarinnar með 33 stig en Gautaborg í því 10. með 31 stig.

Árni Vilhjálmsson lék síðustu 10 mínúturnar fyrir Jönköpings í 3:1 sigri á móti Sirius. Jönköpings er í þriðja neðsta sætinu með 23 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert