Óvænt tap hjá Rúnari Alex

Rúnar Alex Rúnarsson
Rúnar Alex Rúnarsson mbl.is/Eggert Jóhannesson

Rúnar Alex Rúnarsson og félagar hans í Nordsjælland töpuðu óvænt á heimavelli gegn AGF í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

Rúnar Alex lék í markinu hjá Nodsjælland sem lenti 2:0 undir eftir klukkutímaleik en liðinu tókst að klóra í bakkann þegar um 10 mínútur voru til leiksloka.

Nordsjælland trónir á toppi deildarinnar með 19 stig og hefur tveggja stiga forskot á Hobro eftir 9 umferðir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert