Góður sigur hjá Dagnýju og stöllum

Dagný í leik með Portland Thorns.
Dagný í leik með Portland Thorns. Ljósmynd/Heimasíða Portland Thorns

Dagný Brynjarsdóttir spilaði fyrri hálfleikinn í 2:0-heimasigri Portland Thorns á Houston Dash í bandarísku deildinni í knattspyrnu í nótt. Portland hefur nú unnið fimm af síðustu sex leikjum sínum í deildinni og er liðið í öðru sæti, fimm stigum á eftir North Carolina Courage. 

Portland komst í 1:0 með marki frá Lindsey Horan eftir 14 mínútur. Dagný fékk gult spjald á 32. mínútu og var hún tekin af velli í hálfleik. Danska landsliðskonan Nadia Nadim kom inn á í hennar stað. 

Amandine Henry skoraði annað mark Portland á 49. mínútu og þar við sat. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert