Markmaðurinn Rúnar Alex Rúnarsson fer vel af stað með Nordsjælland í dönsku A-deildinni í knattspyrnu í ár. Hann hefur staðið á milli stanganna í tveimur fyrstu leikjum liðsins á leiktíðinni og er liðið með fullt hús stiga eftir óvæntan 3:2 sigur á Hirti Hermannssyni og félögum í Brøndby í gær.
Eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi átti Rúnar mjög góðan leik. Fyrir utan að verja nokkrum sinnum vel er hann augljóslega mjög leikinn með boltann í löppunum líka, eins og faðir hans, fyrrum landsliðsmaðurinn Rúnar Kristinsson, var á sínum tíma.