Elías Már fær liðsfélaga frá Juventus

Vajebah Sakor er orðinn liðsfélagi Elíasar Más.
Vajebah Sakor er orðinn liðsfélagi Elíasar Más. Ljósmynd/Heimasíða Juventus

Elías Már Ómarsson, knattspyrnumaður Gautaborgar í Svíþjóð, fékk liðsfélaga frá ítalska stórliðinu Juventus í dag. Vajebah Sakor hefur verið samningsbundinn Juventus frá árinu 2013 en nú hefur hann skrifað undir eins árs lánssamning við Gautaborg. 

Hann var aðeins 17 ára gamall þegar hann gekk í raðir Juventus frá Asker í Noregi. Það hefur hins vegar gengið illa hjá Sakor að brjótast inn í aðallið Juventus og er þetta í þriðja skipti sem félagið lánar hann. 

Sakor er fæddur í Líberíu en hann flutti ungur til Noregs og hefur leikið með öllum yngri landsliðum Norðmanna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert