Björn Bergmann í öðru sæti

Björn Bergmann í leik með Molde.
Björn Bergmann í leik með Molde. Ljósmynd/moldefk.no

Björn Bergmann Sigurðarson hefur farið vel af stað með Molde í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á leiktíðinni.

Björn Bergmann skoraði sitt 5. mark í deildinni í gær þegar hann innsiglaði 3:1 sigur Molde gegn Stabæk í norsku úrvalsdeildinni í gær.

Björn Bergmann er í öðru sæti í einkunnargjöf norska blaðsins Verdens Gang fyrir frammistöðu sína á tímabilinu. Björn er með einkunnina 6 að meðtali. Aron Sigurðarson sóknarmaður Tromsö er einnig ofarlega í einkunnargjöfinni en hann er í 9. sæti með meðaleinkunnina 5,64.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert