City að kaupa markmann á 45 milljónir

Ederson gæti verið á leið til Englands.
Ederson gæti verið á leið til Englands. AFP

Manchester City og Benfica eru í viðræðum um kaup enska félagsins á Ederson, 23 ára markmanni Benfica. Talið er að City sé reiðubúið að borga 45 milljónir punda fyrir leikmanninn. 

Ederson er frá Brasilíu og hefur hann verið hjá Benfica síðan árið 2015. Talið er næsta víst að Joe Hart, landsliðsmarkmaður Englendinga, verði ekki hjá City á næstu leiktíð, gangi kaupin í gegn. 

Brasilíumaðurinn hefur verið í landsliðshópi þjóðar sinnar, en hann á enn eftir að leika A-landsleik. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert