Björn Bergmann gulltryggði sigur

Björn Bergmann var á skotskónum í dag.
Björn Bergmann var á skotskónum í dag. Ljósmynd/Heimasíða Molde

Björn Bergmann Sigurðarson skoraði þriðja mark Molde sem hafði betur gegn Stabæk í norsku deildinni í knattspyrnu í dag, 3:1. Markið kom í blálokin og gulltryggði sigur Molde, sem var manni færri eftir að Fredrik Aursnes fékk að líta rauða spjaldið á 61. mínútu. 

Molde er í 7. sæti deildarinnar, sjö stigum á eftir toppliði Rosenborg. Björn er kominn með fimm mörk í tíu byrjunarliðsleikjum á leiktíðinni. Óttar Magnús Karlsson var á varamannabekk Molde í leiknum og kom hann ekki við sögu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert