Stórsigur hjá Söru og Wolfsburg á toppnum

Sara Björk Gunnarsdóttir og samherjar í Wolfsburg eru á mikilli …
Sara Björk Gunnarsdóttir og samherjar í Wolfsburg eru á mikilli siglingu. Ljósmynd/vfl-wolfsburg.de

Sara Björk Gunnarsdóttir og samherjar í Wolfsburg náðu þriggja stiga forystu í þýsku 1. deildinni í knattspyrnu í dag með glæsilegum útisigri á Frankfurt, 5:1.

Sara lék allan leikinn á miðjunni hjá Wolfsburg sem er með 44 stig, Turbine Potsdam 41, Bayern München 40, Freiburg 32 og Frankfurt 30 eru í næstu sætum.

Frankfurt komst yfir með marki frá Groenen en Lara Dickenmann jafnaði fyrir hlé, 1:1. Frankfurt gerði sjálfsmark í byrjun síðari hálfleiks og þær Dickenmann, Ewa Pajor og Caroline Hansen bættu við mörkum áður en yfir lauk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert