„Messi er besti leikmaðurinn í sögunni að mínu mati og hef ég nú séð margt í fótboltanum,“ sagði Luis Enrique þjálfari Barcelona eftir sigur sinna manna í mögnuðu fótboltaleik gegn Real Madrid í kvöld.
Messi reyndist bjargvættur Börsunga en hann skoraði sigurmarkið með síðustu spyrnu leiksins og Barcelona hrósaði sigri á Santiago Bernabeu í Madrid, 3:2.
„Í nútímafótbolta þar sem allir eru betri tækilega og líkamlega sterkari þá gerir hann enn gæfumuninn,“ sagði Enrique en með sigrinum í kvöld jafnaði Barcelona lið Real Madrid að stigum. Bæði lið eru með 75 stig en Real Madrid á leik til góða.