Albert fíflaði markvörðinn (myndskeið)

Albert Guðmundsson.
Albert Guðmundsson. Ljósmynd/twitter

Albert Guðmundsson skoraði sitt 15. mark í vetur fyrir varalið PSV í gærkvöldi þegar hann tryggði liðinu 2:2 jafntefli gegn Maastricht í hollensku B-deildinni í knattspyrnu.

Albert skoraði jöfnunarmark liðsins á 87. mínútu þegar hann rak endahnútinn á laglega sókn sem hann hafi sjálfur átt upptökin að með laglegum spretti.

Hann kláraði svo sóknina með stæl með því að fífla markvörðinn og skora í tómt markið, en myndskeið af tilþrifunum má sjá hér að neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert