Hefur trú á öðru kraftaverki

Luis Suárez, Gerard Pique, Lionel Messi og Neymar í léttu …
Luis Suárez, Gerard Pique, Lionel Messi og Neymar í léttu spjalli á æfingu Barcelona-liðsins fyrir leikinn gegn Juventus í kvöld. AFP

Brasilíski sóknarmaðurinn Neymar er bjartsýnn á að Barcelona takist að skapa annað kraftaverk á Camp Nou í kvöld þegar liðið mætir Ítalíumeisturum Juventus í síðari viðureign liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Börsungar þurfa að klífa ansi háa brekku því Juventus fagnaði 3:0 sigri á heimavelli í síðustu viku. En það voru flestir búnir að afskrifa Spánarmeistarana eftir fyrri leik þeirra gegn Paris SG í 16-liða úrslitunum. Þar fögnuðu frönsku meistararnir 4:0 sigri og töldu það formsatriði að tryggja sér sæti í átta liða úrslitin.

Annað kom á daginn. Leikmenn Barcelona náðu að framkalla kraftaverk með því að vinna seinni leikinn, 6:1, og skora þrjú af mörkum sínum á síðustu sjö mínútum leiksins og skoraði Neymar tvö þeirra.

„Við verðum að hafa trú á því að geta snúið þessu við og ég hef fulla trú á því. Við verðum að leggja allt í sölurnar eins og við gerðum á móti Paris. Ef allt fer á besta veg aftur þá hef ég trú á að upplifa annað kraftaverk á Camp Nou,“ sagði Neymar við fréttamenn. Hann ætti að vera vel úthvíldur fyrir kvöldið því hann tók út leikbann með liði sínu í spænsku deildinni um síðustu helgi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert