McLaren boðar betri bíl

Aukið hefur verið við bláa litinn á McLArenbílnum í ár.
Aukið hefur verið við bláa litinn á McLArenbílnum í ár.

McLaren sýndi bæði nýjan bíl og nýtt ökuþórapar í tæknimiðstöð sinni í Woking í Surrey, suður af London. Verður bíllinn knúinn vél  frá Renault, eins og í fyrra. 

Í ljótu bragði virðist bíllinn keimlíkur 2018-bílnum að útliti. Hefur þó verið bætt talsvert við bláa litinn.
ÖkumennMcLaren í ár verða annars vegar CarlosSainz sem færði sig frá Renault og tók sæti burtfarins landa síns, Fernando Alonso. Og hins vegar Lando Norris sem verið hefur í uppeldi hjá McLaren sem ungur ökumaður. Tekur hann sæt iStoffels Vandoorne.

McLarenstjórinn Zak Brown segir liðið hafa uppgötvað hvar það slæddist af  leið í bílhönnuninni í fyrra. Hann segir nýja bílinn ætti að verða mun betri.

„Allir karla og konur hjá McLaren hafa unnið nótt sem nýtan dag við að tryggja að við getum smíðað betri bíl en 2018,“ sagði  Brown.
Aukið hefur verið við bláa litinn á McLArenbílnum í ár.
Aukið hefur verið við bláa litinn á McLArenbílnum í ár.
Aukið hefur verið við bláa litinn á McLArenbílnum í ár.
Aukið hefur verið við bláa litinn á McLArenbílnum í ár.
Carlos Sainz (t.v.) og Lando Norris keppa fyrir McLaren í …
Carlos Sainz (t.v.) og Lando Norris keppa fyrir McLaren í ár.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert