Æfing að engu vegna rigningar

Lokaæfingin fyrir tímatöku franska kappakstursins í Paul Ricard brautinni í  Le Castellet fór meira og minna í súginn vegna rigningar.

Vegna aðstæðna létu ökumenn sér duga þrjá til fjóra hringi til að kann eiginleika brautarinnar í rigningu. Undir bílunum voru full regndekk allan tímann.

Valtteri Bottas á Mercedes átti besta hringinn, Carlos Sainz á Renault fór næsthraðast og þriðja besta hringinn átti Charles Leclerc á Sauber en hann var 1,3 sekúndum lengur í förum en Bottas.

Í næstu s´tum urðu Fernando Alonso     á McLaren,  Sebastian Vettel á Ferrari,  Stoffel Vandoorne á McLaren, Pierre Gasly á Toro Rosso, Marcus Ericsson á Sauber,  Sergio Perez á Force India og tíunda besta hringinn átti svo Daniel Ricciardo á Red Bull, en hann var sex sekúndum lengur í för en Bottas.

Í ellefta og tólfta sæti urðu Lewis Hamilton á Mercedes og Kimi Räikkönen en fleiri settu ekki tíma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert